Leikskólinn Álfasteinn

Með sól í hjarta

25.01.2012 10:29

Gulur dagur


Föstudaginn 27. janúar er gulur dagur.  Þá mega allir koma í einhverju gulu eða með eitthvað gult á litinn. 
Við munum svo vinna með gula litinn á ýmsa vegu næstu tvo mánuði.

                        

11.01.2012 09:52

Íþróttaferð


ÍÞróttaferð á föstudaginn

Föstudaginn 13. janúar förum við í íþróttahúsið á Þelamörk.  Börnin mega hafa með sér íþróttaföt.  Farið verður frá Álfasteini kl.: 9:40 með rútu.  Foreldrar velkomnir með.

16.12.2011 09:36

Jólakveðja


Ágætu foreldrar og börn 

Starfsfólk Álfasteins óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir allar góðu stundirnar á árinu sem er að líða.

13.12.2011 13:21

Skipulagsdagur

Skipulagsdagur verður mánudaginn 2. janúar 2012, þá er leikskólinn lokaður.

12.12.2011 12:34

Jólaball 14/12

Jólaball

Jólaball Álfasteins verður miðvikudaginn 14. desember kl.: 9:30 - 10:30. 
Foreldrar velkomnir.
Dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinninn kemur í heimsókn með gjafir handa börnunum.
Eftir jólaballið bjóða börnin foreldrum sínum upp á veitingar í anda jólanna.

Hlökkum til að sjá ykkur.  emoticon
Jólakveðjur, starfsfólk Álfasteins

07.12.2011 11:48

Kirkjuferð

Á morgun, fimmtudaginn 8. desember, förum við með rútu í Möðruvallakirkju og eigum þar góða stund. Við leggjum af stað héðan frá Álfasteini kl. 9:00.

28.11.2011 08:31

Jólaföndur

Miðvikudaginn 30. nóvember bjóðum við foreldrum að koma og föndra með börnunum milli kl. 9 og 11. Sýnishorn verða tilbúin, allt efni og áhöld verða á staðnum og smá veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur emoticon

23.11.2011 13:06

Rauður dagur

Á föstudaginn er rauður dagur og við hvetjum alla til að mæta rauðklæddir í leikskólann þennan dag eða með eitthvað rautt eins og hárskraut, höfuðfat eða leikfang. Svo gerum við eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins.

18.11.2011 12:20

Bókavika og fleira

Bókavikan hefur aldeilis gengið vel og við höfum fengið að skoða bækur af öllum stærðum og gerðum. Við þökkum börnunum fyrir að vera dugleg að koma með bækur og leyfa öllum að njóta þeirra. Dagur íslenskrar tungu var á miðvikudaginn og í tilefni af honum höfðum við sameiginlega söngstund í salnum þar sem öll börnin og starfsfólkið söng saman skemmtileg lög.

Það gleymdist alveg að blogga eftir afa- og ömmukaffið en það heppnaðist mjög vel og það var gaman að svona margir sáu sér fært að kíkja í heimsókn. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir komuna og þið vitið að þið eruð alltaf velkomin. Myndir frá deginum má sjá í myndaalbúminu hér á síðunni.

31.10.2011 08:47

Nemar í heimsókn og ýmislegt framundan

Á föstudaginn fengum við góða heimsókn þegar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kíkti til okkar ásamt fríðu föruneyti. Þau skoðuðu leikskólann og svo sungum við nokkur lög fyrir þau.

Í dag koma til okkar þrír nemar frá Háskólanum á Akureyri. Þær heita Kolbrún, Sigurveig og Rachel og verða hjá okkur fimm tíma á dag út þessa viku. Við bjóðum þær velkomnar.

Næsta fimmtudag ætla nemendur úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar að koma í heimsókn og spila fyrir okkur. Það er alltaf gaman að hlusta á skemmtilega tónlist og sjá hvað krakkarnir hafa lært mikið.

Á föstudaginn er svo afa- og ömmukaffi hér á Álfasteini en þá mega börnin bjóða öfum sínum og ömmum eða góðum frænda eða frænku að koma í heimsókn milli kl. 8 og 10. Við munum bjóða upp á kaffi og eitthvað með því sem börnin baka.
Það er alltaf nóg að gera á Álfasteini.

24.10.2011 10:51

Alþjóðlegur bangsadagur

Næsta fimmtudag er alþjóðlegi bangsadagurinn og af því tilefni hvetjum við börnin til að koma með uppáhalds bansann sinn í leikskólann þennan dag.

Græni dagurinn gekk aldeilis vel og það voru margir í einhverju grænu og sumir komu með græn leikföng. Börnin voru máluð í framan svo að það var fjölskrúðugur hópur hér á Álfasteini þennan dag, grænar vampírur, kisur, prinsessur og fleiri furðudýr léku sér bæði inni og úti.

19.10.2011 12:53

Grænn dagur

Föstudaginn 21. okt. verður grænn dagur hjá okkur og við hvetjum börnin til að koma grænklædd eða með eitthvað grænt í leikskólann þá.

Það hefur verið líf og fjör í leikskólanum undanfarið t.d. var hattadagur 7. október en þá höfðum við söngstund þar sem allir hópar voru saman og síðan fórum við í nokkra leiki í salnum. Síðasta föstudag sýndu nokkrir starfsmenn leikritið um Gullbrá og birnina þrjá og það vakti mikla lukku hjá börnunum sem sátu öll alveg kyrr og fylgdust spennt með því sem fram fór á sviðinu. Hópastarfið hefur gengið mjög vel og allir eru ánægðir með nýtt skipulag og þær breytingar sem við höfum gert til að aðlaga okkur að heilsustefnunni.

05.10.2011 11:16

Hattadagur

Á föstudaginn  er hattadagur hjá okkur en þá mega börnin koma með höfuðfat í leikskólann t.d. hatt, derhúfu, skuplu eða annað sem til er heima. Við munum svo gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins emoticon 

Loksins eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

21.09.2011 11:07

Náttfatadagur

Föstudaginn 23. september verður náttfatadagur hjá okkur á Álfasteini. Við hvetjum alla til að mæta í náttfötum og svo gerum við okkur glaðan dag emoticon

20.09.2011 12:03

Kynningarfundur 4. okt kl.:20:00

Kynningarfundur leikskólans á starfinu verður þriðjudagskvöldið 4. október kl.:20:00.

Vafraðu um

Nafn:

Leikskólinn Álfasteinn

Heimilisfang:

Hörgársveit

Heimasími:

4612624

Um:

Leikskólinn er rétt norðan sveitarfélagamarka milli Hörgársveitar og Akureyrar, ofan vegar við býlið Dvergastein. Leikskólinn tekur 32 börn.

Tenglar

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 42
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 38817
Samtals gestir: 11420
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:45:35